Besti sparnaðurinn

Gunnar Valur félagi minn úr vörninni sendi mér þennan og verð ég bara að láta hann flakka svona í tilefni ástandsins

 

Ef þið hefðuð lagt 100.000 krónur í að kaupa hlutabréf Nortel fyrir einu ári síðan væri verðmæti bréfanna í dag um 4.900 krónur.

Hefði sama fjárfesting verið lögð í Enron væri sú eign í dag um 1.650 krónur.

 Hefðuð þið keypt bréf í World Com fyrir 100.000 krónur væri minna en 500 kall eftir.

Hefði peningurinn hins vegar verið notaður til að kaupa Thule-bjór fyrir einu ári síðan þá hefði verið hægt að drekka hann allan og fara síðan með dósirnar í endurvinnslu og hafa um 21.400 krónur upp úr því.

Þegar ofangreint er athugað virðist vera vænlegur kostur fyrir fjárfesta að drekka stíft og endurvinna!

 

 

Óli Stefán.......sem er alveg kominn með ógeð af þessari vitleysu dag eftir dag

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hahahaha... góður punktur... EKki það að ég hafi verið eitthvað á leiðinni að fjárfesta í ofangreindu, en þessi punktur virðist huggun harmi geng á svona ´timum... serstaklega þar sem ég hef fjárfest að mínu mati kannski aðeins um of í honum Thule vini mínum :)

kossar á þig,

Harpa

Harpa Flóvents (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 22:12

2 identicon

hæhæ,,

ég varð nú bara að kvitta hérna fyrst ég rakst á þessa síðu :) þú barst nú einmitt í tal fyrir stuttu hjá okkur frænkunum ;) Vona að þú sért að hafa það fínt og væri gaman að rekast á þig við tækifæri :)

Steinunn (IP-tala skráð) 19.10.2008 kl. 13:42

3 Smámynd: Dunni

Hvað ætli maður hefði geta fengið marga af Agli Sterka?

Heyrðu félagi!  Er þetta ekki vitlaust merki sem þú ert með í hausnum á síðunni Þinni?

Dunni, 23.10.2008 kl. 11:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Óli Stefán Flóventsson
Óli Stefán Flóventsson
Ég er 32 ára piltur úr Grindavík. Í dag bý ég hins vegar í Grafarvogi og spila með Fjölni í Fótbolta. Ég hef síðasta árið verið yfirblolggari hjá Grindavík en þar sem ég er ekki lengur að spila með þeim verð ég að fá mitt eigið blogg, þetta bara orðið að fíkn, ég bara get ekki hætt.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband