25.9.2008 | 23:19
Topp 5 í DVD safninu
Ég hef síðustu vikur verið frekar duglegur að fara yfir gamlar dvd myndir sem maður hefur safnað yfir tíðina. Ég ætla aðeins að fara yfir topp 5 listann á þeim myndum í stuttu máli.
5.sæti Enemy of the state með Will Smith og snillingnum Gene Hagman. Ég var búinn að gleyma því að ég ætti þessa mynd og var því ekki búinn að sjá hana í frekar langan tíma. Þetta er alveg fín ræma sem maður getur horft á oftar en einu sinni.
4.sæti Jerry MaGuire með Tom Cruise og Cuba Cooding Jr. Snilldar mynd þar sem þeir félagar fara á kostum og þá sérstaklega Cuba Cooding Jr. Mig minnir meira að segja að kappinn hafi verið tilnefndur til óskarsverðlauna fyrir hlutverk sitt í myndinni
3.sæti Bying the cow er eiginlega svona ein af þessu óvæntu. Ég keypti hana á ferðalagi í Belgrad árið 2004 en þá vissi ég gjörsamlega ekkert um hana. Ég fékk hana í tilboði í 5 dvd myndapakka og svo sló hún svona þræl skemmtilega í gegn. Ryan Reynolds fer hamförum í þessari snilldargrínmynd
2.sæti Executive decision er ein af mínum uppáhaldsmyndum. Hún er líka þessi óvænta sem maður átti nú ekki mikið vona á. Ég held að af öllum mínum dvd myndum hafi ég horft á þessa mest. Ég man hvað mér fannst það mikil snilld að Steven Segal sem maður hélt að væri nú aðalhetjan í þessari mynd dó eftir 20 mín, það gerði myndina einhvernvegin miklu betri.
1.sæti Black Hawk Down er stríðsmynd eftir Ridley Scott sem byggð er á sönnum atburðum. Ég spilaði og kláraði tölvuleikinn áður en ég sá myndina en hún er ein af betri stríðsmyndum sem maður hefur séð. Mögnuð ræma sem er klárlega besta dvd mynd sem ég á.
Óli Stefán........ sem er miklu meira fyrir það að eiga myndir á dvd í stað þess að safna þeim á einhvern flakkarardjöful
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Óli minn ekki nóg með að Cuba hafi verið tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir hlutverk sitt í Jerry Maguire heldur vann hann þau líka.
Verð nú að segja að þetta safn kemur mér nokkuð á óvart, fyrir mitt persónulega leiti þá finnst mér vanta inn myndir þarna eins og Shawshank Redemption, Gladiator, Braveheart ofl sem að allir ættu að eiga uppí hillu hjá sér.
Ég er samt sem áður sammála þér með að það sé skemmtilegra að eiga myndir á DVD heldur en á flakkara enda er ég líka búinn að kaupa mér 6 nýjar DVD myndir núna á innan við tveimur vikum ;)
Danni T (IP-tala skráð) 26.9.2008 kl. 18:13
Já ég á allar þessar myndir á vhs spólum Danni. Tveir kassar fullir af þvílíkum fjölda af myndum sem færu allar inn á þennan lista.
17 (IP-tala skráð) 26.9.2008 kl. 20:05
http://www.ifutbal.com/videos/12281/carling-cup--arsenal-vs-sheffield-united-highlights-.html hérna kallinn minn þetta er minn hlutur af sigrinum þínum í golfinu í gær erum við þá ekki kvittir:-)hehehehe
Daniel (IP-tala skráð) 28.9.2008 kl. 12:16
Á ekkert að fara að skrifa pistil um atburði seinustu helgar uppá skaga, það verður nú að deila þessu með þjóðinni :)
Stoi (IP-tala skráð) 1.10.2008 kl. 16:02
14 ára bið á enda, njóttu dagsins.. Áfram Fjölnir :D
Helga Flóventsdóttir (IP-tala skráð) 4.10.2008 kl. 11:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.