Alaska

Ég verð alveg að viðurkenna það að þó að ég hafi ákveðið fyrir fjórum árum að flytja í höfuðborgina þá koma nú alltaf tímar sem maður saknar þess að búa í Grindavík, sérstaklega á þetta við á morgnana þegar að maður er að berjast í gegnum umferð dauðans í 20-30 mín. Í Grindavík tók mann um 3 min að fara í vinnu 3 min að fara á æfingu 2 min að fara í búðinu og 5 min að labba á Lukku Láka sem er barinn okkar. Í Reykavík tekur mig ekki langan tíma að fara á æfingu en að fara í skólann tekur þessar 20-30 min á morgnana þegar að umferðin, sem að ég hata, er sem mest en það fyndna er að ég er ekki nema 10 min heim aftur.

Í gær verð ég svo að viðurkenna til baka að ég saknaði þess ekki að búa í ALASKA. Ég hef bara aldrei séð svona mikinn snjó á þeim 28 árum sem að ég bjó þarna. Ég er jafnvel viss um að það hefur ekki snjóað svona mikið samanlagt á þessum 28 árum. Þarna voru menn alveg klukkutíma að koma sér í vinnuna ef ekki lengur. Ég er nokkuð viss um að jafnvel meistari Jankó hefur lent í erfiðleikum með að finna stað til að æfa á. Nú hefur getur Grindavík ekki bara státað sig af mesta vind landsins heldur núna eiga þeir mesta sjó landsins og ef að þessu er blandað saman þá er nú útlitið ekki gott.

Óli Stefán......sem að mundi hvaða dag vikunar taka Alaska fram yfir Keflavík. Er það ekki Rikki?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég allavega myndi taka Alaska fram yfir Keflavík á hverjum degi ! . . svei mér, ef það fyrirfinnst þá eitthvað sem ég myndi ekki taka fram yfir Keflavík! :)

Harpa Flovents (IP-tala skráð) 17.1.2008 kl. 23:29

2 identicon

Já Óli minn þetta er verðið sem maður greiðir fyrir að búa í stórborgum. En svo er náttúrlega munur á því að þú ert kannski ekki nema 15 mín að fara í bíó ef sá gállinn er á þér á móts við klukkutíma hérna í gamla daga ;)

Daníel Tryggvi Daníelsson (IP-tala skráð) 18.1.2008 kl. 11:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Óli Stefán Flóventsson
Óli Stefán Flóventsson
Ég er 32 ára piltur úr Grindavík. Í dag bý ég hins vegar í Grafarvogi og spila með Fjölni í Fótbolta. Ég hef síðasta árið verið yfirblolggari hjá Grindavík en þar sem ég er ekki lengur að spila með þeim verð ég að fá mitt eigið blogg, þetta bara orðið að fíkn, ég bara get ekki hætt.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband