Fótboltaveisla framundan

Nú eru hlutirnir sko að gerast í Reykjavíkurmótinu. Í kvöld kl 19.00 spila Valsmenn við Kringa þar sem við Fjölnismenn grátum það alveg þurrum tárum ef að KR nær stigi/um í móti Val. Fjölnir á svo leik við Leikni kl 21.00 og þann leik þarf einfaldlega að vinna.

Mér skilst að síðustu ár hafi Fjölnir átt í erfiðleikum með "minni" liðin og spilað þeim mun betur á móti betri liðum. Kannast einhver úr Grindavíkinni við þetta?? Þetta er búið að vera vandamál hjá öllum flokkum í fótbolta og það sem meira er þá er þetta vandamál í körfunni í Grindavík líka.

Skiljanlega er maður að fylgjast með enska á fullu þessa dagana enda mínir menn komnir þægilega á toppinn. Mér finnst nú alltaf jafn fyndið þegar að Man utd menn eru að tala um að ungir menn Wengers þoli ekki pressuna og að þeir eigi þessa og þessa leiki eftir. Hvenær ætla þeir að fara að taka Arsenal alvarlega? Þeir verða að fara að gera það áður en það verður of seint og kannski fara að spá meira í sínum leikjum en leikjum minna manna. 

Á laugardaginn er svo stóri leikurinn í bikarnum en mínir menn fara þá á old trafford. Ég veit ekki alveg með þennan leik en hann er nú samt ekki tapaður ennþá. væri eitthvað skemmtilegra en að slá þá út úr bikarnum. Eru  byssurnar kannski of ungar til að gera tilkall í bikarinn líka??

 

Óli Stefán..... sem að verður að fara að kynna sér æfingareglur Fjölnismanna því að þær virðast vera flóknari en anskotinn 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með sigurinn á Leikni. KR-ingarnir gerðu ykkur svo greiða með að vinna Valsmenn.

 Núna þurfið þið bara að vinna ÍR á sunnudaginn og þá komnir í úrslitaleikinn, ekki slæm byrjun það á ferlinum með nýju liði að fara bara beint í úrslitaleikinn á Reykjavíkurmótinu. Tala nú ekki um ef þið vinnið bara mótið, hefur þá ferilinn hjá Fjölni alveg eins og þú laukst honum hjá Grindavík, með því að taka á móti bikar ;)

Daníel Tryggvi (IP-tala skráð) 15.2.2008 kl. 14:01

2 identicon

Þetta er Arsenal mönnum líkt, afsökunartónn í þessu fyrir leik. Hvar á annars að horfa á leikinn Óli?

Gíggi (IP-tala skráð) 15.2.2008 kl. 17:21

3 identicon

Heyrðu er ekki skárra að vera ekki með einhverjar yfirlýsingar eins og þið og þurfa svo að éta þær ofan í sig?? Ég er ekki búinn að gera það upp við mig hvar ég horfi á leikinn. Ertu með hugmyndir??

7-an (IP-tala skráð) 15.2.2008 kl. 17:53

4 identicon

Classic Rock? Players?

Gíggi (IP-tala skráð) 15.2.2008 kl. 22:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Óli Stefán Flóventsson
Óli Stefán Flóventsson
Ég er 32 ára piltur úr Grindavík. Í dag bý ég hins vegar í Grafarvogi og spila með Fjölni í Fótbolta. Ég hef síðasta árið verið yfirblolggari hjá Grindavík en þar sem ég er ekki lengur að spila með þeim verð ég að fá mitt eigið blogg, þetta bara orðið að fíkn, ég bara get ekki hætt.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband