Roling Stones Shine a light

Ég hef alla tíð haft gríðarlegan áhuga á tónlist og þá sér í lagi tónlist frá tíma þegar að Bítlarnir og Stones komu fram tímanum eftir það. Ég á sjálfsagt föður mínum það að þakka enda mikill tónlistarspekúlant þar á ferð. Ég hef klárlega verið með Bítlana, Stones og The Dors ásamt öllum þeim snillingum sem voru í gangi þá í botni í móðurkviði. Það leið ekki sá dagur að annaðhvort karlinn væri með einhverja plötuna í gangi eða spilandi sjálfur á gítarinn þegar að maður svo ólst upp þannig að á unglingsárum mínum voru þetta hljómsveitirnar sem maður hlustaði á og geri enn þann dag í dag.

Á dögunum skelltum við feðgarnir okkur svo í bíó á myndina Shine A Light sem er tónleika mynd Roling Stones eftir meistara Martin Scorsese. Þarna er áhorfendanum sýnt alvöru tónleika með alvöru hljómsveit. Við erum að tala um útúrlifaða gamlingja sem eru langt gengnir í sjötugt þó að það sjáist hvergi nærri á frammistöðu þeirra. Þvílíkur kraftur í þessum töffurum og þvílík orka. Mick Jagger er gjörsamlega á fullu allan tímann og þó að maður haldi að Keith Richards sé að gefa upp öndina í hverju lagi þá virðist hann aldrei hafa verið betri. Þeir fá síðan listamenn úr öllum áttum og Jagger er meðal annars að slátra gyðjunni Cristinu Aguileru í kynþokka þarna.

Við feðgarnir létum vel um okkur fara í lúxussal og á köflum fannst maður maður bara vera upp við sviðið þarna í Boston slík var stemmningin. Það er allavega klárt að þarna var maður að ná einhverskonar broti af upplifun sem fylgir því að fara á tónleika með stærstu hljómsveit allra tíma.

Óli Stefán......sem er með Sympathy for the devil í botni núna 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

þetta eru snillingar sá þá á parken í fyrra og það var magnað er viss um að jaggerinn sé í betra formi en flestir leikmenn í efstu deild í knattspyrnu þá á ég við 30 ára og yngri...;o)

Siggi Birgis. (IP-tala skráð) 29.4.2008 kl. 05:30

2 identicon

Nú kemur þú mér á óvart drengur. Ég hélt að þú hlustaðir bara á Merceders Club og vissir ekki einu sinni hvað Roling Stones væri hehe. Og ekki vanmeta 30 ára og eldri, spurðu bara Gunnar Már Ingvar og Bjarka, eru þeir ekki í svipuðu formi og Jagger karlinn? Þeir voru það allavega þegar að ég flutti úr Grindavík

7-an (IP-tala skráð) 29.4.2008 kl. 12:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Óli Stefán Flóventsson
Óli Stefán Flóventsson
Ég er 32 ára piltur úr Grindavík. Í dag bý ég hins vegar í Grafarvogi og spila með Fjölni í Fótbolta. Ég hef síðasta árið verið yfirblolggari hjá Grindavík en þar sem ég er ekki lengur að spila með þeim verð ég að fá mitt eigið blogg, þetta bara orðið að fíkn, ég bara get ekki hætt.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband