30.8.2008 | 14:45
Undirbúningur fyrir undanúrslitaleik
Á morgun fer fram einn af þessum stóru leikjum sem eiga eftir að standa uppúr í minningunni þegar að maður hættir þessu sparki. Við erum að fara að spila við stórgott lið Fylkis í undanúrslitum bikarsins. Ég hef spilað þrjá undanúrslitaleiki og unnið einn og "píp" tveimur. Síðast spilaði ég að mig minnir á móti Leiftri Ólafsfirði 1997 undanúrslitaleik sem var í Grindavík og töpuðum við 0-2 sælla minninga.
Þessi mynd af Geira kemur þessari færslu ekkert við en ég fer bara alltaf í svo gott skap þegar að ég sé hana. (Þið getið klikkað á hana til að stækka hana)
Núna er Fjölnir að fara annað árið í röð í undanúrslitaleik og aftur á móti Fylki og aftur spilar Fjölnir í varabúningunum (sem mér finnst flottari) og þá er bara að sjá hvort að Fjölnir vinni ekki bara aftur líka. Strákarnir tala enn um þá svakalegu stemmningu sem var eftir þennan leik í fyrra og menn eru tilbúnir að gera hvað sem er til að vinna. Meistari Markan er búinn að heita á liðið og það ekkert lítið áheit.
Hvernig búa menn sig undir svona leiki? Gera menn það á svipaðan hátt og venjulega eða breyta menn útaf vananum og prufa eitthvað nýtt og ferskt?. Ég persónulega fer í sömu rútínu og alltaf sem felst í því að spá sem allra minnst um leikinn og helst ekkert að ræða hann fyrr en maður mætir í klefann. Auðvitað verður maður að hlaða líkamann orku og mataræðið er því eftir því. Svefn og hvíld er í rútínunni og svo að vakna snemma á leikdag. Aðal málið fyrir mig er s.s að spá sem allra minnst í leiknum og getur það oft verið nokkuð flókið þegar að maður vaknar snemma á sunnudegi og leikurinn síðan seint um kvöldið. Auðvitað hafa allir sinn hátt á sem virkar misvel á menn.
Heimir Snær í miðjunni
Nýjasti meðlimur mfl. Fjölnis heitir því skemmtilega nafni Heimir Guðmundsson sem er enn einn uppaldni FHingurinn í okkar herbúðum. Ég viðurkenni fúslega að ég átti ekki von á miklu frá kauða en sá hefur heldur betur slegið í gegn, bæði innan vallar sem utan. Heimir er svona lúmska týpan sem lætur lítið fyrir sér fara og hendir síðan inn gullmolum í umræðuna, svona svipað og Pétur Markan.........eða ekki. Þó að mér líki afskaplega vel við strákinn varð ég að gefa honum gula spjaldið í klefanum áðan þegar að hann fór að setja út á Bubba þegar hann var að syngja Blindsker og Ólinn í hæstu hæðum að hlusta á kónginn. Ég kenni svolítið Tóa samt um að vera ekki búinn að útskýra reglurnar fyrir Heimi þannig að hann slapp með gula spjaldið í þetta sinn.
Óli Stefán........sem líður ekkert alltof vel yfir því að hafa rifist við bestasta vin sinn hann D.Rú í reitabolta í morgun. Fyrirgefðu elsku Davíð minn
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sjáumst á Laugardalsvelli í úrslitaleiknum milli Fjölnis og stórveldisins.
S. Lúther Gestsson, 30.8.2008 kl. 18:20
Til hamingju með sigurinn í dag. Allavega einn grindvíkingur í úrslitaleiknum þó hann spili ekki í "réttum" gulum búningi þar ;)
Kv úr Víkinni kennd við Grind :D
Petra Rós (IP-tala skráð) 31.8.2008 kl. 22:04
til Lukku með leikinn.. alltaf skal það vera markaleikir hjá Fjölni.. sem er gott... og já DiCanio er drengur góður..
Gísli Torfi, 1.9.2008 kl. 07:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.