Þá er loksins komið að því

Í dag spilar Fjölnir sinn fyrsta leik í efstu deild þegar að við mætum Þrótti úr Reykjavík á Valbjarnarvelli kl 14.00. Leikir þessara liða hafa víst verið stórbrotnir í gegnum tíðina og báðir leikir síðasta árs frábær skemmtun með mikilli dramatík. Stemmningin hér í Grafarvogi er mikil og má búast við fjölmenni í Laugardalnum.

Fjölnir sem er án efa yngsta lið deildarinnar hefur náð eftirteknaverðum árangri síðustu ár og eru núna að uppskera laun erfiðisins og spila á stóra sviðinu í ár. Það er stórkostlegur heiður að fá að taka þátt í þessum merka áfanga og þar með skrifa nafn mitt í sögubækur Fjölnis. Mín spá er að innan fárra ára verður þessi klúbbur risi íslenskra knattspyrnu. Í ár er fyrsta skrefið tekið í þá átt og eru væntingar því stilltar í hóf. Að halda sér meðal þeirra bestu er það sem menn ætla sér og allt umfram það verður bónus.

Ég vona að Grafarvogsbúar taki sem flestir þátt í þessu með okkur því það er ljóst að leikmenn, þjálfarar og stjórn ætla að skemmta sér vel í sumar og eins og áður sagði byrja herlegheitin í dag kl 14.00

 

Óli Stefán.....sem er búinn að pússa markaskóna  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hey

Petra Rós (IP-tala skráð) 10.5.2008 kl. 23:40

2 identicon

Hey til hamingju með sigurinn í dag. Samkvæmt Valtý Birni á Rás 2 á áttuð þið þetta algjörlega skilið.

Mig langaði svo bara að segja þér að við í fótboltanum vorum að þrífa gömlu íbúðina þína í blokkinni fyrir markmanninn okkar og þar fundust nokkrar gersemar frá þér. Greinilega varla verið þrifið frá því þú fluttir !!! En stelpunum fannst þetta mjög fyndið þegar þær fundu m.a. "vafasamar" vieóspólur frá þér   híhíhíhí 

Petra Rós (IP-tala skráð) 10.5.2008 kl. 23:44

3 identicon

Petra, þú skilar bara þessum spólum til annars manns í blokkinni, hann á þær. Fjalla þær ekki um sænskar miðaldra húsmæður sem eru eitthvað að fikta í pípulögnunum heima hjá sér? Grunar það.

Gíggi (IP-tala skráð) 11.5.2008 kl. 09:10

4 identicon

Til hamingju með fyrsta sigurinn í efstu deild. Glæsileg byrjun á tímabilinu hjá ykkur Fjölnismönnum, nú er bara að vona að þið haldið áfram á sömu braut :)

Daníel Tryggvi (IP-tala skráð) 11.5.2008 kl. 10:28

5 Smámynd: Gísli Torfi

Ein spurning .. tók nefnilega ekki eftir því... fékkstu 7-una ..

en til lukku með að vinna mína menn.. þið voruð bara betri .. fótbolti er einföld íþrótt.

held nú að vísu alltaf með snillinginum Dabba vini mínum "Dicanio" 

Gísli Torfi, 12.5.2008 kl. 01:45

6 identicon

Nei Gústi gamli fékk 7-una. Við litum svo á ég og Pétur Markan að við ættum meira ein eitt tímabil eftir en Gústi á ekki von á að vera lengur í boltanum. Við létum því gamla hafa hana og svo sláumst við séra Pétur um hana á næsta ári. Dabbi er nátturlega snillingur en þetta er í fyrsta skipti sem ég hef séð honum líkt við Dicanio. Hann er nátturlega sami skaphundurinn, sérstaklega í reitarbolta.

17-an (IP-tala skráð) 12.5.2008 kl. 09:46

7 identicon

Ég sel það ekki dýrara en ég keypti það en ég frétti frá heimildamönnum mínum úr Grindavík að þessar spólur væru um Færeyska togarajaxla sem voru strand úti á sjó vikum saman og höfðu bara hvern annan til að seðja kynþörfum sínum. Kemur mér NÁKVÆMLEGA ekkert á óvart að sjá að herbergisfélagi minn eigi svoleiðis efni!

Nr 19 (IP-tala skráð) 13.5.2008 kl. 01:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Óli Stefán Flóventsson
Óli Stefán Flóventsson
Ég er 32 ára piltur úr Grindavík. Í dag bý ég hins vegar í Grafarvogi og spila með Fjölni í Fótbolta. Ég hef síðasta árið verið yfirblolggari hjá Grindavík en þar sem ég er ekki lengur að spila með þeim verð ég að fá mitt eigið blogg, þetta bara orðið að fíkn, ég bara get ekki hætt.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband