Helgin

Í gær spiluðum við Fjölnismenn við Berta sperta og félaga í ÍBV. Leikurinn fór fram í blanka logni og 15 stiga hita í Egilshöllinni. Félagi minn hann Albert Sævars var þarna að spila sinn fyrsta leik fyrir þá hvítklæddu og er óhætt að segja að karlinn hafi rifjað upp gamla takta því drengurinn fór á kostum. Hann varði hvað eftir annað á undraverðan hátt og hélt sínum mönnum inní leiknum því við vorum að mér fannst að yfirspila þá (kannski hlutdrægur en þetta á að vera kalt mat). Eyjapeyjar komust síðan frekar óverðskuldað yfir í einni af þremur sóknum sínum í leiknum og ekki mikið eftir en Dabbi sá til þess að við töpuðum ekki fyrsta leik ársins og fór leikurinn 1-1.

Þegar að þessum leik var lokið kom maður sér bara fyrir í stofunni heima til að horfa á Ísland spila í handboltanum. Ég hef nú ekki endalaust vit á þessari annars ágætu íþróttagrein en mér fannst, þó að við höfðu gegnið frá Slóvökum í fyrri hálfleik, að sóknarleikurinn væri bara lélegur. Mér fannst það sama á móti Svíum en nú var vörnin bara svo svakaleg að við skoruðum endalaust af hraðaupphlaupum. Þegar að þeir náðu að stilla vörnina sína þá vorum við í vandræðum. Vona bara að sóknarleikurinn nái að blómstra í dag á móti Frökkum. 

Eftir leik í gær horfði ég á laugardagslögin og var svo sofnaður um 22.00 en það held ég að hafi ekki gerst frá því að ég komst til vits og ára enda var ég vaknaður fyrir allar aldir í morgun.  

 

Óli Stefán...... sem er að reyna að læra Drive með Incubus á gítarinn


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heyrðu Óli minn vissirðu það að þú ert ennþá skráður á heimilisfangið Leynisbraut 13c í Grindavík ef maður flettir þér upp í símaskránni?

Daníel Tryggvi (IP-tala skráð) 21.1.2008 kl. 10:53

2 Smámynd: Óli Stefán Flóventsson

Já ég komst að því þegar að það hringdi í mig blaðamaður á dögunum til að ath hvort að ég vissi nokkuð hvar Kalli Bjarni væri niðurkominn en hann sá þá að ég byggi á svipuðum slóðum og hann.

Óli Stefán Flóventsson, 21.1.2008 kl. 16:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Óli Stefán Flóventsson
Óli Stefán Flóventsson
Ég er 32 ára piltur úr Grindavík. Í dag bý ég hins vegar í Grafarvogi og spila með Fjölni í Fótbolta. Ég hef síðasta árið verið yfirblolggari hjá Grindavík en þar sem ég er ekki lengur að spila með þeim verð ég að fá mitt eigið blogg, þetta bara orðið að fíkn, ég bara get ekki hætt.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband